
Dagbók
4.5.2010 15:03 ![]() Sól og blíða ásamt bröttum brekkum fullum af snjó drógu Flintstones á Norðulandið aðra helgina í röð Lesa meira... |
27.4.2010 11:15 ![]() Þar sem að fjöllin heita eftir Siggum og Viggum, dalirnir kenndir við Þorgeir og Flateyjar fögnuðu Flintstones sumrinu. Lesa meira... |
28.1.2010 11:36 ![]() Þorrablót Flintstones var haldið á Laugardaginn. Lesa meira...Nói hefði verði góður þarna með Örkina og öll dýrin, ljóst er að við þurfum að fara með bát næst á fjöll. Línuvegurinn er mjög illa farinn, inn við Þórólfsfell eru jarðskautin frá möstrunum kominn uppúr |
4.1.2010 14:50 ![]() Endalausar brekkur og blíða drógu Flintstones aðra helgina í röð á Norðurlandið. |
15.5.2009 14:31 Flintstones smellti sér í renning frá Grenivík um helgina. Lesa meira...Sáum eitt ský, við Vestmannaeyjar :) |
29.3.2009 21:15 ![]() Magnaður Sunnudagur í sókninni, Þokkalega fært upp Meyjarsætið á lítið breyttum kreppukerrum. Lesa meira...Búið að snjóa vel, Þórisdalur og gígurinn á kafi í púðri. |
16.3.2009 15:34 Hver segir að það vanti snjó í sóknina ! Lesa meira...Brunað í Vetraríki að kveldi mánudags, tekinn renningur á þriðjudegi í litlu skyggni. Slyddujeppa fært upp Meyjarsæti og að Sandfelli við línuveg. |
12.3.2009 15:55 Hinn ofurduglegu drengir Flintstones notuðu sólina á fimmtudaginn til að skoða á bakvið Kálfstinda og inní Skriðukrók. Fórum uppá Skriðu topp og fengum þetta fína útsýni. Aðeins farið að harna færið en fínt púður á milli. Tekið var af við Vörðuna. Lesa meira... |
7.3.2009 16:04 ![]() Einstaklega skemmtilegt færi inní Þórisdal, Skápum og Langafellinu. |
3.3.2009 15:26 ![]() Eftir snilldarhelgi á fjöllum var haldið aftur af stað á mánudagskveldi. Búið var að snjóa allann mánudaginn og var snilldar púður um alla dali og fjöll. Við langafell var hné djúpt púður þar sem ofukisur, Turbo jammar og Ashole Polaris voru einir í heiminum. Lesa meira... |
27.2.2009 12:28 ![]() Loksins sól og púður. Fórum upp og niður allar brekkur og dali í Jarlhettunum. Gunni Jó mætti á sponsu nýjum Polaris Assult og var verulega efnilegur. Jói ofur kisa reyndi að klóra Ella Turbo sem stakk hann af á jöklinum, þetta var jú upp í móti !! |
14.2.2009 12:25 ![]() Farið var í skála í fínu púðri. Aðeins fyrirstaða á línuveginum, fínt að fá smá jeppabrölt á þetta líka. |
3.1.2009 12:21 ![]() Gleðilegt ár bara, hvernig er hægt að byrja þetta betur. Snjór og krapi :) Lesa meira... |
16.10.2008 22:21 ![]() Hinir óviðjafnanlegu Flintstones héldu Ársfund sinn þ. 17.-19. október 2008. Þurfti ekkert minna en 3 daga til að komast yfir öll þau verkefni sem lágu fyrir fundinum sem haldinn var í miðju bankahruni íslenzka lýðveldisins. |
13.6.2008 13:08 Hizt var á Geysi á skaplegum tíma og ekið inn fyrir Geldingafell í góðan snjó. Brennt var uppá Suður Jökul yfir Skriðufellið að hömrum Pétursborgar ( Péturskers ) og aukabensín skilið þar eftir undir vökulu auga þursins í hamrinum háa. Enda verða slík verðmæti ekki lengur skilin eftir eftirlitslaust. |
13.5.2008 10:29 Þó að veðurspáin væri ekki flott og fín þá var glæsilegt veður í sókninni. Lesa meira...Þegar Turbo og Nítró koma saman, þá er gaman. |
14.4.2008 23:22 ![]() Kæruleysi og algjör skortur á skynsemi olli því að Rafbrautarforstjórarnir ákváðu síðdegis á sunnudegi að mæta ekki til vinnu heldur halda til fjalla og njóta hinnar forspáðu veðurblíðu sem rættist heldur betur því ef veður og aðstæður hefðu verið betri þá hefði þetta verið verra. Lesa meira... |
6.4.2008 22:28 ![]() Með þennan snjó á fjöllum og þessa spá, þá var skylda að vera á fjöllum. |
30.3.2008 21:59 ![]() Í sól og blíðu var rennt vítt og breytt um sóknina. Fórum frá Tjaldafell í Skriðukrókinn og niður að Kálfstindum og innað skála aftur, fínt færi. Tókum svo Langafellið, gíginn í Skerslunum svo Þórisdalinn. Fórum svo milli Þórisjökuls og Stóra Björnsfell og niður með Litla Björnsfellinu. Lesa meira... |
16.2.2008 22:18 ![]() Loksins loksins, eftir áralangt spjall og pælingar var lagt af stað í Hreppinn Lesa meira... |
19.1.2008 22:22 ![]() Hið árlega Þorrablót Flintstones var haldið á laugardag. F350 félagarnir Elli og Gunni Jó slóu öll tímamet, voru 10 tíma á leiðinni í skála upp Meyjarsæti og inn línuveg. Púðursnjór uppá húdd víða. Einn hjólbarðinn hjá Gunna vildi ekki hafa neitt loft lengur og yfirgaf samkvæmið. Lesa meira... |
11.1.2008 22:07 ![]() 4 Flinstonar á fjöll með fullar kerrur og bíla af dóti. |
7.1.2008 16:41 ![]() Tæplega nægur sleðasnjór. |
29.12.2007 15:27 ![]() Þetta var skíðastútunarferð ársins fyrir Polaris auk þess sem Arctic Cat Jóa skipstjóra Víkartinds framdi tvisvar Sleða-Harakiri á leiðinni innúr sem þýddi samtals 1 ½ tíma viðgerðastopp. Lesa meira... |
9.12.2007 21:49 ![]() Snjóbúskapur var í góðu lagi kringum skálana og innúr. Mætti samt bæta í. Hittum tvo unga menn inn við Ísavatn sem höfðu tekið af niður við Vörðu og sögðu þeir snjómagurt inneftir en fært. |
16.9.2007 22:50 ![]() |
23.6.2007 22:02 ![]() Farið var kl 10 :00 frá Geysi og rennt í þurru og rykugu færi uppí Skálpanes. Þar tóku menn af í krapa og renndu inná Suðurjökul sunnan Skriðufells. Reyndist færið á jökli hið ferlegasta. Ójöfnur og misbráð vegna áfoks og mikils vinds undanfarna daga auk þess sem fryst hafði á nóttunni og þegar slikt endurtekur sig nokkra daga í röð magnast misbráðin um allan helming. Þó var hægt að halda sæmilegri ferð með allnokkru skaki þó |
29.5.2007 22:22 |
11.5.2007 23:46 ![]() Þann 11.maí fóru 3 ferðfúsir Ríkisbubbar upp í Vetrarríki og hugðust sleðast frá staðnum á laugardeginum í skaflaleyfum vetrarins. Yfirundanfari Flintstones var sendur á undan til að kynda Solo og gera húsið klárt fyrir Ofurjammann og fylgdarmann hans. Undanfarinn var kominn í skála kl 18:00 en sporgöngumenn mættu ekki á svæðið fyrr en kl 23:00 . Komu þeir nýkosnir og sáttir við að hafa sinnt samfélagslegri skyldu sinni að sýna Framsókn puttann. |
6.5.2007 23:38 ![]() Fórum í skála á 2 bílum inn línuveg, tókum af í hlíðum Skjalbreiðar. Magnað hvað allur krapi hefur minnkað á einni viku. Lesa meira... |
28.4.2007 23:31 ![]() Alveg magnað með svona góðan búnað að þetta geti bilað. Lesa meira... |
19.4.2007 10:34 ![]() Daginn fyrir Sumardaginn fyrsta 2007 lögðu undirritaður yfirundanfari og Þröstur Jónsson undirundanfari sem gengdu starfi slóðaleggjenda, Soloræsingarmanna og steikarfanta upp frá Bragabót um kl. 15:00 og óku létting inn að Tjaldafelli í sól og blíðu. Við komuna í Vetrarríki var Solo ræstur og megasteik búin undir ferðalag í ofninn. |
8.4.2007 22:58 ![]() Fórum í Vetrarríkið á miðvikudeginum fyrir Skírdag. |
28.3.2007 22:00 ![]() Svona eiga miðvikudagar að vera. Lesa meira...Fórum á 9 sleðnum í c.a 200km túr um sóknina í gær. Tekið var við fyrsta skafl á Gjábakkavegi. |
28.3.2007 21:29 ![]() Loksins er búið að koma happý takkanum í. Lesa meira... |
2.3.2007 07:04 ![]() Flogið var snjókönnunarflug í matartíma aðstoðarflugmannsins Gunna Jó sem tekinn var með svo að flugstjórinnsjóndaprirataði aftur á heimaflugvöll. Lesa meira... |
9.2.2007 22:54 ![]() Burrað á bílum alla leið í skála. |
14.1.2007 22:24 ![]() Flinstones kíkti í Vetrarríkið í Sókninni á Laugardaginn, tókum landið og miðin á Sunnudeginum. Þeir sem fóru frá Bragabót þurftu aðeins á "þolinmæðisgeninu" að halda en við sem fórum á bíl upp Meyjarsætið höfðum það náðugt, frá Þingvöllum alla leið inní skála var lítil fyrirstaða fyrir jeppa með kerru Lesa meira... |
26.6.2006 14:20 ![]() Hinir trúu og staðföstu Rafbrautarforstjórar í Flintstoneshópnum ákváðu að boða til lokaferðar þessarar sleðavertíðar ´05-´06 og halda á gamalkunnar slóðir ofanvið heimahagana í Sókninni. Valinn var föstudagurinn 23. júní vegna anna Knoll og Tott við önnur skyldustörf um komandi helgi. Lesa meira... |
1.4.2006 14:17 ![]() 5 ferðalangar lögðu af stað kl 07:00 frá Litlu Kaffistofunni. Voru þar á ferð undirritaður, verkfræðingurinn ( Dú-Dú ) og 3 aðilar sem hugðu gott til glóðarinnar að njóta leiðsagnar staðkunnugra um víðáttur Torfajökulsvæðisins. . Þetta voru Egill vélaverkfræðingur( Dú-Dú árg 1989 ),Björn Hróarsson jarðfræðingur ( Yamaha ) og kona hans Guðrún ( Dú-Dú 800 H.O. ). Lesa meira... |
19.3.2006 14:16 ![]() Við tókum Sunnudags steikina í skálanum, fórum inn Kaldadal uppúr Meyjarsæti og línuveginn innúr. Lesa meira... |
13.3.2006 22:36 ![]() Sökum leiðindaveðurs um helgina var ákveðið að vera á fjöllum í sólinni á mánudag. Við förum á bílum alla leið í Vetrarríki við Tjaldafell seinni part á sunnudag. Lesa meira...Ef maður næði einni ferð á ári þá væri það þessi. |
11.2.2006 14:09 ![]() Ferð í Vetrarríkið þann 11.febrúar 2006. Eins og séstþá hefur verulega gengið á snjóinn á svæðinu. Segja má að menn hafi haldið sig í vegstæðinu alveg frá Bragabót ( les : Snjóleysuvöllum ) inn að Skefilfjallahorni með smá útúrdúrum. |
13.1.2006 14:14 ![]() Fórum í fínan túr í skálann um helgina, Skerslin voru full af púðri og var verið fram í myrkur að leika sér. Lesa meira... |
7.11.2005 22:58 ![]() Loksins lét Elli af því að fá afl í Yamaha Vector Mountain. Lesa meira...Sleðinn kemur 120Hp en er nú orðinn um 200hp. Eftir prufutúr á Langjökul um helgina sjást ekki eyrun á Ella fyrir sólskins brosinu. |